Heildarlausnir
Ráðgjöf til viðskiptavina
Starfsmenn Límtrés Vírnets ehf. búa yfir mikilli reynslu og þekkingu og eru ávallt reiðubúnir að veita viðskiptavinum sérhæfða ráðgjöf við lausn verkefna frá upphafi til verkloka. Sérstök áhersla er lögð á samvinnu við arkitekta og verkfræðinga á hönnunarstiginu.
Leiðbeiningar við uppsetningu
Starfsmenn Límtrés Vírnets ehf. veita viðskiptavinum sínum allar almennar upplýsingar og aðstoð varðandi uppsetningu, verklag og vinnutilhögun.
Límtré Vírnet ehf. býður eftirfarandi lausnir.
-
Límtré, yleiningar og steinullareiningar
-
Límtré og aðrar klæðningar
-
Stálgrind og stálklæðningar
-
Stálgrind og aðrar klæðningar
-
Rúmgrindur (e. space frames)
-
Margar gerðir af hurðum